Birta Ósmann Þórhallsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður í bókasafni Vesturbyggðar.
Birta er menntuð í myndlist og ritlist og hefur undanfarin ár unnið sem sjálfstætt starfandi rithöfundur, þýðandi og myndlistarmaður, auk þess sem hún rekur bókaútgáfuna Skriðu á Patreksfirði.
Birta hefur einnig komið að ýmsum verkefnum tengdum söfnum og safnastarfi í gegnum tíðina.
Birta er ráðin til bókasafnsins í eitt ár.