Vestfjarðastofa: Lausnamót um sjálfbæra Vestfjarðaleið

Hacking Vestfjarðaleiðin er lausnamót og hugarflug nýrra hugmynda sem fer fram 24.- 25. ágúst næstkomandi og er opið öllum sem hafa áhuga á nýsköpun, umhverfismálum og sjálfbærni.Þátttakendur vinna að því að þróa lausnir við áskoruninni:
Hvernig hönnum við Sjálfbæra Vestfjarðarleið?
Leitað er að nýjum hugmyndum og verkefnum á sviði orkunýtingar, samgangna, ferðaþjónustu, innviða, matarsóunar, viðhorfa og venja, samfélags, iðnaðar flutninga, iðnaðar og framleiðslu og fleira. Markmið hugmyndasamkeppninnar er að efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á svæðinu og þannig stuðla að nýjum verkefnum og viðskiptatækifærum. Lausnamótinu er ekki síður ætlað að vekja athygli á því öfluga frumkvöðlasamfélagi sem er á Vesturlandi og Vestfjörðum. Útkoman úr lausnamótinu getur verið stafræn lausn, vara, þjónusta, verkefni, hugbúnaður, vélbúnaður, markaðsherferð, eða annað í þeim dúr.

Lausnamótið Hacking Vestfjarðarleiðin fer fram á netinu dagana 24.- 25. ágúst og lýkur á verðlaunaafhendingu fyrir bestu lausnirnar. Aðalverðlaunin eru 300.000 kr auk fjölda aukaverðlauna frá frumkvöðlum og fyrirtækjum á svæðinu.

Skráning er á www.hackinghekla.is

Hacking Vestfjarðarleiðin er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Vestfjarðarstofu, Samtökum sveitarfélaga á Vestulandi og Bláma. Verkefnið er styrkt af Lóu.

DEILA