Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veikinda um borð í skemmtiferðaskipi sem var við akkeri í Dynjandisvogi.
Áhöfnin á TF-EIR tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 10:45 í morgun og var komin að skipinu um klukkustund síðar.
Vel gekk að hífa sjúklinginn um borð í þyrluna en hann var fluttur á Landspítalann í Fossvogi. Þetta er annað útkall þyrlusveitarinnar í skemmtiferðaskip á rúmum sólarhring.