Snæfjallahringurinn

Af Stað er með í einstaka ferð á þetta fallega og fáfarna svæði, eina af perlum Vestfjarða!

Ætlunin er að bera allt á bakinu og ganga um fjörur, heiðar og firði, í leit að ævintýrum. Þessi ferð mun skilja margar minningar eftir!

Gengið verður meðfram Snæfjallaströndinni og gömul býli skoðuð áður en farið verður yfir fjöllin og inn í Jökulfirðina.

Genginn verður hringur og byrjað og endað á sama stað, 4 dögum seinna.

Þetta er frábær leið þar sem fjölbreytileikinn ræður ríkjum. Dagleiðirnar eru mismunandi og gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í ágætis gönguformi.

Dagskráin er eftirfarandi:

Dagur 1 – Tirðilmýri – Sandeyri (13km – 20m hækkun – 3 klst)
Hópurinn hittist við bæinn Tirðilmýri þar sem vegurinn endar. Við rennum í gegnum búnaðinn okkar og höldum af stað í fyrsta daginn. Nú verður gengið í fjörunni og hækkunin því lítil. Á vegi okkar verða margar perlur og útsýni yfir Djúpið.

Dagur 2 – Sandeyri – Sútarabúðir (15km – 600m hækkun – 6 klst)
Við kveðjum Snæfjallaströndina í dag og höldum upp með Berjadalsá og yfir fjöllin, alla leið á Sútarabúðir í Grunnavík. Þar munum við eflaust rekast á einn og annan þar sem um mjög fallegan og vinsælan stað er að ræða.

Dagur 3 – Sútarabúðir – Flæðareyri (15km – 300m – 6 klst)
Við höldum yfir heiði og með ströndinni í dag yfir á Flæðareyri. Hér mætast fjöllin og fjaran og græna lyngið allt um kring. Við munum þurfa að vaða yfir ár og læki og gerir það daginn ennþá skemmtilegri.

Dagur 4 – Flæðareyri – Tirðilmýri (19km – 700m hækkun – 8 klst)
Við tökum síðasta daginn snemma og kveðjum Flæðareyri , höldum upp í fjöllin. Höldum upp meðfram Dynjandisá upp á hæsta punkt okkar í um 600m hæð. Lækkunin verður síðan þægileg og göngum við niður í Unaðsdal og að upphafsstað okkar þar sem bílarnir bíða.

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

DEILA