Salmonella í kjúklingabringum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingabringum frá Esju Gæðafæði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin á eingöngu við framleiðslulotu 23205.

  • Vörumerki: Kjötsel
  • Vöruheiti: Kjúklingabringur grilltvenna úrb marineruð
  • Framleiðandi: Esja Gæðafæði Bitruhálsi 2 110 Reykjavík
  • Lota: 23205
  • Strikamerki: 2395041
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Geymsluþol:
  • Dreifing: Nettó verslanir

Neyt­end­um sem keypt hafa vör­una er bent á að þeir geta skilað vörunni í viðkomandi verslanir eða til Esju Gæðafæðis, Bitruhálsi 2, 110 Reykjavík. Esja Gæðafæði biður neyt­end­ur vel­v­irðing­ar á þeim óþæg­ind­um sem af þessu get­ur skap­ast.

Salmonella er hópur þarmasýkla og er hún sjálfstæð ættkvísl. Salmonella er í raun bara ein tegund sem kallast Salmonella enterica, en í dag er litið svo á að tegundinni tilheyri 7 undirtegundir og 2200 sermigerðir. Allar sermigerðirnar geta valdið sjúkdómum hjá mönnum en algengustu afbrigðin sem valda sýkingum eru S. Typhimurium og S. Enteritidis

DEILA