Nýnemadagar í Háskólasetri

Nýnemadagar Háskólaseturs hófust formlega í föstudag þar sem tekið var á móti fjölbreyttum og skemmtilegum hópi nemenda sem hefja nú meistaranám við Háskólasetur Vestfjarða.

Hópurinn samanstendur af nemendum frá mörgum löndum og með ólíkan bakgrunn.

Nemendurnir fengu að hitta starfsfólk háskólaseturs og fengu kynningu á sögu skólans frá Peter Weiss, forstöðumanni.

Fljótlega var farið út í portið þar sem fagstjórarnir Brack Hale og Matthias Kokorsch stýrðu leikjum sem hjálpuðu nemendum og starfsfólki að kynnast betur.

Sem dæmi má nefna leik þar sem nemendur og starfsfólk áttu að mynda kort með því að raða sér niður á lönd, og leik þar sem raða átti sér í eina línu eftir afmælisdag án þess að tala saman.

Eftir hádegismatinn fóru nemendur og starfsfólk í göngutúr um Ísafjörð þar sem nemendur fengu leiðsögn um bæinn.

Haldið verður áfram með nýnemadaga í dag, mánudag, þar sem nemendur fá frekari kynningu á náminu frá fagstjórunum Brack og Matthias.

DEILA