Ísafjarðarbær – Óskað eftir tilnefningum um bæjarlistamann

Bæjarlistamaður 2022 var tónlistarmaðurinn Guðmundur Hjaltason

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir ár hvert starfandi listamanni sem búsettur er í Ísafjarðarbæ nafnbótina bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar. Nafnbótinni fylgir styrkur að upphæð 250.000 kr.

Útnefning bæjarlistamanns fer fram á Veturnóttum sem haldnar verða 25.-28. október og því óskar menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar eftir tilnefningum eða ábendingum um næsta bæjarlistamann.

Listamenn sem hafa búið í Ísafjarðarbæ um tveggja ára skeið koma til greina sem bæjarlistamenn Ísafjarðarbæjar.

Skilafrestur tilnefninga er til og með 4. september.

DEILA