Ísafjarðarbær: bæjarráð í mánaðarfrí

Ekki er fyrirhugað að bæjarráð Ísafjarðarbæjar haldi næsta fund fyrr en 14. ágúst, en síðasti fundur þess var 17. júlí. Verða þá liðnar fjórar vikur frá síðasta fundi.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 15. júní að sumarleyfi þess væri í júlí og ágúst og að næsti fundur yrði 7. september. Vantar þá aðeins viku upp á að þrír mánuðir líði milli funda. Bæjarstjórnin samþykkti sérstaka bókun um aukið umboð bæjarráðs meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur og fer bæjarráðið á þeim tíma með fullnaðarákvörðun mála samkvæmt 8. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar.

Ekki hefur verið gerð sérstök samþykkt um sumarleyfi bæjarráðs né kveðið á um afgreiðslu mála þessar fjórar vikur sem koma til með að líða milli funda.

DEILA