Hnífsdalur: Bakkaskjól selt á 15,5 m.kr.

Bakkaskjól. Mynd: Ísafjarðarbær.

Alls bárust 10 tilboð í Bakkaskjól í Hnífsdal en eignin var auglýst í síðasta mánuði. Bæjarráð samþykkti í gær að taka hæsta tilboði sem var 15,5 m.kr. og kom frá Áslaugu Jóhönnu Jensdóttur og Magnúsi Helga Alfreðssyni f.h. Trésmiðsins ehf.

Söluandvirðinu verður ráðstafað til endurbóta á fasteignum Ísafjarðarbæjar í Hnífsdal.

DEILA