Keflavík (Galtarviti) til sölu

Jörðin Keflavík sem er á er á milli Skálavíkur og Súgandafjarðar hefur verið auglýst til sölu og er ásett verð 70 milljónir.

Töluverður húsakostur fylgir jörðinni en sjálfur vitinn ( Galtarviti ) sem stendur á landinu er í eigu ríkissins.

Galtarviti sem er í landi Keflavíkur stendur í vík milli Súgandafjarðar og Skálavíkur. Víkin snýr mót opnu hafi og eru siglingar skipa tíðar fram hjá vitanum.

Hægt að komast til Keflavíkur fótgangandi, á snjósleða eða sjóleiðina. Gönguleiðin er um 3 til 4 klst.

Jörðin hefur fastanúmer 212-6644 00 hjá Þjóðskrá. Mannvirki á jörðinni hafa ekki fastanúmer hjá FMR.

Seljendur telja jörðin vera um 600 hektarar. Það er Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17 í Kópavogi sem sér um söluna

DEILA