Enduro- og Ungdúrómót Hjólreiðadeildar Vestra fóru fram í blíðskaparveðri um síðust helgi á Ísafirði.
Mótið var tvískipt þar sem fullorðnir og ungmenni kepptu á föstudag og laugardag en börnin fengu að njóta sín á sunnudaginn.
Á Enduromótinu var keppt í A-flokki, Masters-flokki, B-flokki, Junior, U17 og Rafhjólaflokki.
Í Rafhjólaflokki karla blandaði Vestramaðurinn Aron Svanbjörnsson sér í verðlaunabaráttuna og endaði í þriðja sæti á eftir þeim Helga Berg Friðþjófssyni (BFH) og sigurvegaranum Karli Lilliendahl Ragnarssyni en aðeins munaði tæpum þremur sekúndum á þeim.
Í A-flokki sigraði Jónas Stefánsson, Hjólreiðafélagi Akureyrar, eftir harða keppni við Tindsmanninn Börk Smára Kristinsson, í þriðja sæti varð svo Grétar Örn Guðmundsson, BFH.
Í A-flokki kvenna sigraði Katarína Eik Sigurjónsdóttir, BFH en í öðru sæti var Tindskonan Dagbjört Ásta Jónsdóttir og í því þriðja félagi hennar úr Tindi Rakel Logadóttir.
Á sunnudeginum hélt veðurblíðan áfram og stemmingin var hreint út sagt frábær á Ungdúrómótinu. Keppt var í U11, U13, U15 og U17 flokkum. Keppendur stóðu sig allir frábærlega og gleðin skein af hverju andliti. Boðið var upp á tvær vegalengdir fór mótið fram á Seljalandsdal og endaði í Hjólagarði Vestra þar sem skellt var í góða grillveislu.