Í frétt frá Matvælastofnun kemur fram að stofnunin hafi nýlega lagt stjórnvaldssektir á tvö bú á Vesturlandi vegna brota á lögum um dýravelferð.
Annars vegar var um að ræða bú þar sem hluti fjárins hafði sloppið af bænum fyrir burð og bar því eftirlitslaust og hins vegar bú þar sem nautgripir reyndust vanfóðraðir.
Matvælastofnun hefur enn fremur óskað eftir rannsókn lögreglunnar á Austurlandi á máli þar sem tíu hundar fundust dauðir í útigerði eftir að umráðamaður þeirra hafði verið fjarverandi í nokkra klukkutíma.