Sæferðir með eina tilboðið í rekstur Breiðafjarðaferju

Í gær voru opnuð tilboð í rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026 – Þar er um að ræða sérleyfi á leiðinni Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur – Flatey – Stykkishólmur, þ.e. að annast fólks- og vöruflutninga til og frá Stykkishólmi til Brjánslækjar, með viðkomu í Flatey. 

Aðeins eitt tilboð barst frá Sæferðum núverandi rekstraraðila ferjusiglinga. að upphæð 1,987,155,000 kr. en kostnaðaráætlun Vegagerðar var 1,244,941,551 kr.

Vegna óvissu um hvort að tilboðinu verði tekið hefur öllum 22 starfs­mönn­um Sæ­ferða í Stykk­is­hólmi verið sagt upp störf­um þar sem óvissa rík­ir um áfram­hald­andi rekst­ur.

Í til­kynn­ingu frá Sæ­ferðum kem­ur fram að gert sé ráð fyr­ir að í hönd fari samn­ingaviðræður við Vega­gerðina um rekst­ur á Breiðafjarðarferju fyr­ir árin 2023-2026.

DEILA