Leggja á ljósleiðara í öll hús á Reykhólum

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara á Reykhólum, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í þéttbýli sveitarfélagsins.

Gert er ráð fyrir að tengja öll heimili á Reykhólum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

Reykhólahreppur auglýsir nú eftir aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu á Reykhólum á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til skrifstofu Reykhólahrepps á netfangið skrifstofa@reykholar.is fyrir kl. 12:00 þann 10. ágúst 2023. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga eftir því sem við á.

DEILA