Eftirstöðvar veiðiskyldu sendar í stafrænt pósthólf

Skip sem fá úthutað aflamark er skylt að veiða amk 50% af úthlutuðu aflamarki annars falla aflahlutdeildir skipsins niður.

Hægt er að fá undanþágu frá veiðiskyldunni ef skip tefst frá veiðum í amk. 4 mánuði vegna tjóns eða meiriháttar bilana.

Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um skip sem enn hafa ekki uppfyllt veiðiskyldu, þ.e. að veitt 50% af úthlutuðu aflamarki og aflamarki sem flutt var af fyrra ári. Þeir aðilar sem eiga skip sem ekki hafa uppfyllt veiðiskyldu hafa fengið tilkynningu þess efnis sent inn á pósthólf viðkomandi á island.is.

Alls fengu 145 aðilar tilkynningu um að ekki væri búið að uppfylla veiðiskylduna.

Upplýsingar um veiðiskyldu skipa eru fundnar með því að fletta upp skipi í gegnum á vefsíðu Fiskistofu.

DEILA