Tæplega 15 þúsund sumarhús á landinu – Um 650 á Vestfjörðum

Frá sumarhúsabyggðinni í Hvammi í Bjarnarfirði.

Sumarhús á landinu á síðasta ári voru 14.907 talsins og fjölgaði um 1,4% frá árinu áður en árið 2021 voru sumarhús á landinu 14.697 talsins. Þetta kemur fram í yfirliti Húsnæðis og mannvirkjastofnunar,

Það sem af er ári hafa 51 sumarhús verið skráð hjá HMS, þau eru ýmist í byggingu eða fullkláruð. Heildarfjöldi skráðra sumarhúsa á landinu eru nú 14.967. Sumarhúsum fjölgaði um 1,4% milli áranna 2021-2022 sem var aukning miðað við árin þar á undan þegar skráðum sumarhúsum fjölgaði að jafnaði um 1% milli ára áranna 2018 – 2021.

Flest sumarhús á landinu eru staðsett í Grímsnes- og Grafningshreppi eða 3.266 talsins og í Bláskógarbyggð eru nú skráð 2.139 sumarhús. Í þessum tveimur sveitarfélögum eru nú 37% allra sumarhúsa á landinu. Borgarbyggð kemur í þriðja sæti með 1.502 sumarhús.

Stærð sumarhúsa fara stækkandi eftir árum samkvæmt gögnum fasteignaskrár Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar. Hús sem eru skráð með byggingarár á núverandi ári eru að meðaltali 98,3 fermetrar að stærð og hafa farið stækkandi frá ári til árs.  Sumarhús sem byggð voru fyrir tíu árum síðan voru að jafnaði 79,1 fermetrar að stærð og fyrir tuttugu árum voru þá 59,7 fermetrar.

DEILA