Landhelgisgæslan og bandaríski sjóherinn æfðu björgun á Húnaflóa

P8, kafbátaleitarflugvél bandaríska sjóhersins, tók þátt í æfingunni og varpaði búnaði út í Húnaflóa.

Landhelgisgæslan og bandaríski sjóherinn æfðu saman leit og björgun á Húnaflóa í gær.

Varðskipið Freyja og eftirlitsflugvélin TF-SIF tóku tóku þátt í æfingunni fyrir hönd Landhelgisgæslunnar og áhöfn P8 flugvélar fyrir hönd sjóhersins.

Áhafnir varðskipsins og flugvélanna fengu það verkefni að leita að fiskibáti á Húnaflóa með tveimur innanborðs sem var í vanda. Þegar báturinn fannst var björgunarbáti varpað úr kafbátaleitarflugvélinni að bátnum og sömuleiðis var búnaði varpað úr flugvélinni.

Æfingin heppnaðist vel. Landhelgisgæslan æfir reglulega með helstu samstarfsaðilum sínum á hafsvæðinu umhverfis landið en slíkar æfingar eru afar mikilvægar.

DEILA