Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem felur í sér íbúðabyggð á landfyllingu norðan Skutulsfjarðareyrar.
Tillagan var auglýst frá 6. mars til 2. maí 2023.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hefur tekið athugasemdir og umsagnir sem bárust á auglýsingartíma til efnislegrar meðferðar á tveimur fundum. Nefndin telur athugasemdir ekki gefa ekki tilefni til að gerðar verði efnislegar breytingar á uppdrætti og greinargerð
Tillögurnar verða nú sendar Skipulagsstofnun til staðfestingar.