Lokað hundagerði verður sett upp á Ísafirði í sumar þar sem hundaeigendur munu geta sleppt hundum sínum lausum undir eftirliti.
Gerðið verður um 1100 m2 að stærð og verður staðsett á opna svæðinu á horni Suðurgötu og Njarðarsunds.
Tilkynnt verður sérstaklega um opnun gerðisins þegar það er tilbúið.