HÆRRA HLUTFALL HEIMILA Í EIGIN HÚSNÆÐI 2021 EN 2011

Alls voru 97.951 heimili af 130.899 heimilum í landinu í eigin húsnæði í manntalinu 2021 eða tæp 75%. Þetta er aðeins hærra hlutfall en var í manntalinu 2011 (tæp 72%).

Rúm 90% para án barna bjuggu í eigin húsnæði en það var sú heimilisgerð þar sem hlutfallið var hæst.

Lægst var hlutfallið á meðal heimila með tveimur eða fleiri einstæðingum sem var eina tegund heimilis þar sem hlutfallið lækkaði frá síðasta manntali. Næst lægst var hlutfallið á meðal einstæðra mæðra.

DEILA