Vefsíðan strandhreinsun.is opnuð í fjörunni á Geldinganesi

Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra og Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra og Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofunar, settu átakið Strandhreinsun Íslands formlega af stað með opnun heimasíðunnar strandhreinsun.is. Viðburðurinn fór fram í fjörunni á Geldinganesi.

Að því búnu hófu þau strandhreinsun á svæðinu ásamt starfsfólki sínu frá Umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinu og Umhverfisstofnun.

Strandhreinsun Íslands er 5 ára átak í hreinsun strandlengju Íslands af plasti og öðrum úrgangi. 

Átakið byggir á aðgerð 17 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum. Hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir eiga þátt í að halda hafinu hreinu. 

Strandlengjan er um 5000 km að lengd og er nauðsynlegt að framkvæma hreinsun hennar með kerfisbundnum hætti. 

Átakið var sett af stað af Umhverfisráðuneytinu árið 2021 og stendur til 2025. 

Til þess að taka þátt í verkefninu er farið inn á vefsíðuna strandhreinsun.is. Þátttakandi velur bút af strandlengju á korti og tekur frá. Að hreinsun lokinni verða niðurstöðurnar gerðar sýnilegar á kortinu. 

Lögaðilum s.s. félagasamtök eða áhugamannafélögum gefst færi á að sækja um styrk til verkefna sem felast í hreinsun strandlengjunnar. Umhverfisstofnun mun úthluta styrkjunum árlega næstu þrjú árin. 

Opið er fyrir umsóknir fyrir úthlutun ársins 2023 til 9. júní n.k. 

DEILA