Ráðstefna um sæskrímsli á Bíldudal

Hvers vegna erum við hætt að sjá sæskrímsli?
Hvernig líta sæskrímsli út?

Myndum við þekkja þau ef við sæjum þau í dag?

Listafólki og fræðafólki verður stefnt saman á Skrímslasetrinu á Bíldudal laugardaginn 13. maí kl. 10-16 til þess að ræða þessar spuringar og fleiri sem tengjast sæskrímslum bæði í fullri alvöru og á léttum nótum.

Fyrir hádegi verða nokkur erindi sérfræðinga um sæskrímsli, uppruna þeirra, eðli og útlit. Við spáum í hafið sem sögusvið og ástand lífríkis sjávar í dag.Eftir léttan hádegisverð verður boðið upp á vinnusmiðjur og hugarflug með þátttakendum þar sem rýnt verður í frásagnir af sæskrímslum, útlit þeirra og hegðun. Brian Pilkington teiknari, sirkusfólk frá Hringleik, gervahönnuðir frá Pilkington Props og Hildur Knútsdóttir rithöfundur verða meðal þeirra sem leiða smiðjurnar.

Ráðstefnan er mikilvægur hluti af undirbúningi fyrir glænýja risastóra götuleiksýningu sem verður opnunarsýning Listahátíðar í Reykjavík 2024. Sirkushópurinn Hringleikur stendur að sýningunni í samstarfi við Listahátíð og Pilkington Props. Sýningin mun ferðast víða um land í júní á næsta ári.

Ráðstefnustjóri er dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir.Allt áhugafólk um sæskrímsli er hjartanlega velkomið og aðgangur er ókeypis!

Að ráðstefnunni standa Listahátíð í Reykjavík, Hringleikur, Pilkington Props, Skrímslasetrið á Bíldudal og Þjóðfræðistofa á Ströndum.

DEILA