Póstbox á fjórum stöðum á Vestfjörðum

Samkvæmt upplýsingum Póstsins hafa nú verið sett upp póstbox á fjórum stöðum á Vestfjörðum það er á Patrekfirði, Tálknafirði , Bíldudal og Ísafirði.

Póstbox við sundlaugina á Tálknafirði

Á heimasíðu Póstsins er greint frá því að auðvelt sé að sækja og senda pakka í póstboxi.

Hægt er að sækja í póstbox, þegar pakki er sendur í póstbox fá viðskiptavinir SMS, tölvupóst eða tilkynningu í appi með QR kóða og Pin númeri:

  • Þú ferð að póstboxinu sem tilgreint er í tilkynningunni
  • Þú skannar QR kóðann í lesaranum eða slærð inn símanúmer og PIN númer
  • Póstboxið opnast og þú tekur pakkann þinn
  • Þú lokar póstboxinu aftur

Leiðbeiningar hvernig hægt sé að senda með póstboxi:

Ferlið við að senda pakka er einfalt og þægilegt – í fjórum skrefum:

  • Innskráðu þig á Mínar síður á posturinn.is eða í appinu
  • Færðu inn kortanúmer og skráðu pakkann
  • Farðu með pakkann í næsta póstbox þar sem þú prentar út merkingar/límmiða*
  • Settu pakkann í boxið og hann fer sína leið

Ítarlegar upplýsingar um póstboxin er að finna á heimasíðu póstsins.

DEILA