Matvælastofnun varar við fuglaflensu

Skæð fuglaflensa H5N1 greindist í stokkönd sem fannst í lok mars í húsagarði í Garðabæ.

Niðurstöður bárust frá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum á mánudag.

Þetta er fyrsta greining á skæðri fuglaflensu í ár. Hætta á smiti frá villtum fuglum í alifugla er álitin vera töluverð og því mikilvægt að allir sem halda alifugla gæti ýtrustu smitvarna.

Frá því fyrir síðustu helgi hefur Matvælastofnun borist fjöldi tilkynninga um veikar og dauðar ritur og um eina dauða grágæs vestast á Seltjarnarnesi.

Tilkynningar bárust sama dag einnig um fjölda veikra og dauðra rita í Keflavík. Síðan þá hafa daglega borist tilkynningar um fjölda dauðra rita við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og á stærra svæði vestanvert á Reykjanesi.

Aðspurt segist fólk ekki sjá veikindi í öðrum fuglategundum og ekki heldur dauða fugla af öðrum tegundum á þessum slóðum. Á báðum stöðum voru tekin sýni, en ekki fundust fuglaflensuveirur í þeim samkvæmt niðurstöðum sem bárust frá Keldum í gær. Sýni var einnig tekið úr grágæsinni sem fannst fyrir helgi á Seltjarnarnesi og fuglaflensa greindist ekki heldur í henni.

Það er því óljóst hvað veldur þessum skyndilega mikla dauða, en málið er í rannsókn og frekari sýni verða tekin.

Matvælastofnun biður almenning áfram um að upplýsa stofnunina um fund á veikum og dauðum villtum fuglum. Frá þeim svæðum þar sem áberandi dauði er í ritum er æskilegt að fá tilkynningu ef aðrar tegundir en ritur finnast, svo hægt sé að taka frekari sýni og til að kanna útbreiðslu dauða í mismunandi fuglategundum.

DEILA