Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur veitt garðyrkjustjóra heimild til grisjunar grenitrjá í Jónsgarði. Starfsmanni nefndarinnar var jafnframt falið að hafa samband við Björgunarfélag Ísafjarðar um færslu á auglýsingaskilti við Pollgötu og jafnframt var starfsmanni falið að ræða við hverfisráð um útfærslu á ábendingum þeirra.
Fyrir nefndinni var lagt minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og tengiliðs hverfisráðanna, dags. 8. maí 2023 með ábendingum hverfisráða um fegrun bæjarkjarna.
Hverfisráð fyrir Eyri og efri bæ:
Skipagöturóló | Ábendingar sviðsstjóra/starfsmanna |
Þarf upplyftingu, mála grindverk, bæta leiktæki laga gúmmí mottur við rennibraut og fjárfesta kannski í einu nýju tæki. Bæta við bekkjum og borðum. Þarf að sá í gras. | Ekki gert ráð fyrir nýju tæki í fjárfestingaráætlun 2023 |
Rósarunnar við Nettó | |
Þetta er orðið góðir rusl safnarar eins og aðili í Hverfisráði orðaði það. Það mætti minnka umfang þeirra og setja gras eða ker á milli. | |
Ruslatunnur í bænum | |
Það þarf að fjölda ruslatunnum í miðbænum. Þá sérstaklega nálægt hafnarsvæði fra Suðurgötu að Pollgötu. | |
Áningarstaðir | |
Klára merkja svæði við Varnargarða og jafnvel huga að einhverjum rusla ílátum þar. | |
Jónsgarður | |
Halda áfram að huga að Jónsgarði – fegra reyta arfa gróðursetja | |
Göngustígur á norðanverði Eyri | |
Laga bekki og ljós við nýja göngustíg bakvið blokkir á Fjarðarstræti. Bekkur hefur skemmst við snjómokstur og krotað á staurana. | |
Neðsti kaupstaður | |
Mætti bæta við blómum og kerum við Neðsta og gönguleiðir fra höfn að svæðinu sem og frá Suðurgötu að bænum | |
Opin svæði | |
Hvetja fólk til að fjarlægja drasl og lausamuni á opnum lóðum. Mikið af dóti í bakgörðum hingað og þangað í bænum brotið tjaldhysi og númera lausir bilar við Fjarðarstræti | |
Slá á wardstúni, tún við körfubolta völl hjá Suðurgötu/pollgötu. | |
Blómagarður | |
Blómagarður hressa uppá grindverk. | |
Landsbankaplan | |
Beðin þar eru ekki í góðu standi og þetta blessaða auglýsinga skilti mætti fara inn að skeiði til sýnis og grasbletturinn við Hafnarstræti mætti rækta upp og laga. |