Daníel kosinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ

Daníel Jakobsson, Ísafirði var einn af sjö sem um helgina var kosinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Níu einstaklingar buðu sig fram í sjö sæti meðstjórnenda í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Eftirfarandi hlutu kosningu til næstu fjögurra ára (upptalningin er í stafrófsröð):

Daníel Jakobsson
Elsa Nielsen
Hafsteinn Pálsson
Hjördís Guðmundsdóttir 
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir
Olga Bjarnadóttir 
Ragnheiður Ríkharðsdóttir

Fyrir sitja í framkvæmdastjórn ÍSÍ: Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, Þórey Edda Elísdóttir, 1. varaforseti ÍSÍ, Garðar Svansson, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, Hörður Þorsteinsson, Úlfur Helgi Hróbjartsson, Viðar Garðarsson og Valdimar Leó Friðriksson.

Til fróðleiks má geta þess að einn af þeim er Hildur Karen Aðalsteinsdóttir frá Bolungavík.

DEILA