Bíldudalur: krían er komin

Nokkrar kríur sáust í gær 3. maí við Bíldudalsvoginn að sögn Úlfars Thoroddsen sem þar er að huga að æðarvarpi.

Er það degi fyrr en í fyrra þegar hún sást þann fjórða maí.

Svo það er sannarlega vor í lofti við Arnarfjörðinn.

DEILA