Stóra upplestrarkeppni grunnskólanna á sunnanverðum Vestfjörðum 2023 var haldin í gær, 26. apríl, við hátíðlega athöfn. Upplesararnir stóðu sig allir með stakri prýði.
Spennan lá í loftinu í Tálknafjarðarkirkju enda höfðu upplesararnir lagt mikið á sig við undirbúninginn.
Skáld keppninnar að þessu sinni voru Gunnar Helgason og Ingibjörg Haraldsdóttir. Í síðustu umferð keppninnar fluttu þeir ljóð að eigin vali, þar á meðal mátti heyra nokkur frumsamin ljóð.
Nemendurnir hlutu allir viðurkenningarskjöl, blóm og bókina Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2022, að gjöf. Sólrún Elsa Steinarsdóttir og Tryggvi Sveinn Eyjólfsson fluttu tónlistaratriði með undirleik Helgu Gísladóttur.
Arna Lea Magnúsdóttir, Jörundur Garðarsson og Lilja Magnúsdóttir skipuðu dómnefndina. Dómarar réðu ráðum sínum í þónokkurn tíma en komust þó loks að sameiginlegri niðurstöðu.
Í fyrsta sæti var Hildur Ása Gísladóttir úr Bíldudalsskóla, í öðru sæti var Jón Þór Hugason úr Tálknafjarðarskóla og í þriðja sæti var Victoria Rós Sæmundsdóttir úr Tálknafjarðarskóla. Þau hlutu öll gjafabréf frá Landsbankanum í verðlaun.