Á bæjarstjórnarfundi í Ísafjarðarbæ á þriðjudaginn voru samþykktar breytingar á nefndarskipan Sjálfstæðismanna í þremur nefndum.
Í fræðslunefnd var Dagný Finnbjörnsdóttir kosin aðalmaður D-lista í fræðslunefnd, í stað Steinunnar Guðnýjar Einarsdóttur, sem var kosin varamaður D-lista í stað Þóru Marýjar Arnórsdóttur.
Í skipulags- og mannvirkjanefnd var Steinunn Guðný Einarsdóttir kosin aðalmaður D-lista í stað Aðalsteins Egils Traustasonar. Jafnframt var Þóra Marý Arnórsdóttir kosin varamaður í stað Steinunnar Guðnýjar Einarsdóttur.
Þá var einnig gerð breyting í umhverfis- og framkvæmdanefnd hjá D lista. Þóra Marý Arnórsdóttir var kosin aðalmaður í stað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur.