Á Ísafirði verður safnast saman við Alþýðuhúsið og mun kröfugangan leggja af stað þaðan klukkan 14:00 í heiðursfylgd lögreglu og lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi. Gengið verður að Edinborgarhúsinu þar sem hátíðardagskrá hefst að lokinni göngu.
- Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar flytur tónlist
- Auður Alfa Ólafsdóttir heldur ræðu
- Hjördís Þráinsdóttir og Steingrímur Rúnar Guðmundsson flytja tónlist
- Kómedíuleikhúsið sýnir barnaleikritið Dimmalimm
- Eyþór Bjarnason fer með gamanmál
Að lokinni hátíðardagskrá í Edinborg sér Slysavarnardeildin Iðunn um kaffiveitingar í Guðmundarbúð.
Börnum á öllum aldri verður boðið í bíó. Klukkan 14:00 og 16:00 verður barnamyndin Magnús hinn magnaði sýnd í Ísafjarðarbíói, en klukkan 20:00 verður sýnd myndin AIR: Courting a legend. Aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá á Suðureyri
- Kl. 14:00 Kröfuganga frá Brekkukoti
- Kl. 14:30 Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar
- Kl. 15:00 Hátíðardagskrá í Félagsheimili Súgfirðinga, en þar verður boðið upp á kaffiveitingar undir ávarpi og tónlistarflutningi.
Dagskrá á Patreksfirði
Boðið verður í bíó í Skjaldborgarbíói klukkan 16:00. Sýnd verður myndin Magnús hinn magnaði og er aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Dagskráin í Bolungavík
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur býður bæjarbúum í kaffi og meðlæti þann 1. maí 2023 kl. 14:00 í Félagsheimili Bolungarvíkur.
8. og 9. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur og foreldrar þeirra sjá um veitingar. Tónlistaratriði í boði Tónlistarskóla Bolungarvíkur.