Styrkir til hugvitsmanna

Ár hvert veitir Samgöngustofa styrk/styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.

Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt.

Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um.

Umsókn skal senda til Samgöngustofu og þar á að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu í heild sem og greinargerð fyrir því hvaða hluta verkefnisins styrkurinn mun nýtast í.

DEILA