Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar fer fram 16. mars kl. 17:30 í Félagsheimili Bolungarvíkur.
Það eru nemendur í 7. bekk sem taka þátt og æfa sig fyrir undankeppni sem fram fer í hverjum skóla í lok febrúar þar sem nemendur eru valdir til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans.
Lokahátíð fer svo fram í mars og fer hún að þessu sinni fram í Bolungarvík
Hafa ber í huga að „keppnin“ er í raun aðeins formsatriði, nokkurs konar staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur í skólastarfinu, og því miklu meir í ætt við uppskeruhátíð.
Ekki skiptir máli hver sigrar, heldur það að tekist hafi að virkja nemendur til að vanda upplestur sinn um veturinn.
Allir eru velkomnir á keppnina, frítt inn.