Aðalfundur hjólreiðadeildar Vestra

Aðalfundur hjólreiðadeildar Vetsra verður haldinn á fimmtudaginn 16. mars í Skátaheimilinu á Ísafirði, Mjallargötu 4 og hefst kl 20.

Það eru spennandi tímar framundan hjá hjólreiðadeildinn, enn sem komið er virðist veturinn vera snjóléttur og það þýðir að hjólasumarið byrjar mun fyrr en í fyrra. 

Í sumar ætlar hjólreiðadeildin að leggja sérstaka áherslu á að efla innra starf félagsins og þá sérstaklega barna og unglingastarfið. 

Stjórnin hvetur sem flesta til þess að mæta á aðalfundinn og hjálpa til við að leggja línurnar fyrir sumarið. 

Dagskrá aðalfundar
Fundarsetning.
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Formaður deildar gerir grein fyrir starfsemi deildarinnar á liðnu starfsári.
3. Gjaldkeri deildar leggur fram ársreikning til samþykktar og gerir grein fyrir reikningum deildarinnar sem staðfestir hafa verið af kjörnum skoðunarmanni og gjaldkera aðalstjórnar.
4. Reglugerðabreytingar
5. Félagsgjald
6. Kosningar:
a) Kosninn formaður deildar til eins árs.
b) Kosnir tveir meðstjórnendur og tveir varamenn til eins árs í senn.
7. Markmið og sýn félagsins. Áætlanir fyrir 2023
8. Viðurkenning til efnilegasta hjólreiðafóks Vestra.
9. Önnur mál.


DEILA