Matvælaráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða er varða svæðaskipting strandveiða og er umsagnarfrestur er til og með 15. febrúar 2023.
Í frumvarpinu er lagt til að aflaheimildum til strandveiða verði skipt á fjögur landsvæði líkt og gert var áður en núverandi fyrirkomulag var sett á árið 2018. Ætlunin er að skipting aflaheimilda fari eftir fjölda báta sem skráðir eru á hvert svæði.
Þegar leyfilegum heildarafla hvers tímabils á viðkomandi svæði verður náð skal Fiskistofa stöðva veiðar á því svæði.
Gert er ráð fyrur að ráðherra skuli með reglugerð kveða nánar um skiptingu landsvæða og aflaheimilda á tímabil og landsvæði.
Ljóst er að skiptar skoðanir eru hjá smábátasjómönnum um þessar breytingar, sumir telja breytingarnar vera neikvætt skref aftur í tímann og að þær muni skapa aukna slysahættu og hafa önnur neikvæð áhrif á aðstæður til strandveiða. Aðrir telja breytingarnar vera til bóta og að þær muni bæta skilyrði til strandveiða.
Ráðuneytið lagði mat á umsagnirnar og hafði hliðsjón af þeim við samningu nýs frumvarps.