Samtök sjómanna skrifuðu undir tímamóta kjarasamning við útgerðarmenn undir miðnætti í gær.
Samningurinn er til 10 ára með uppsagnarákvæði sem hægt er að virkja eftir 4 ár.
Samið var um 3,5% viðbótargreiðslu í lífeyrissjóð og að sjómenn fái sömu hækkanir á kauptryggingunni og aðrir fá, hvort sem um er að ræða krónutöluhækkanir eða prósentuhækkanir, þar sem lágmarkslaun fylgi í framtíðinni töflu í samningum Starfsgreinasambandsins.
Frekari upplýsingar og kynningarefni verður birt á heimasíðu félaganna síðar í dag eða á morgun.
Þá hefur verið ákveðið að halda opna kynningarfundi um innihald samningana en tímasetning þeirra funda liggur ekki fyrir.
Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og verður kynnt betur síðar.