Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra segist lengi hafa talað fyrir því „að laxeldi í sjó verði að þróast úr opnum sjókvíum yfir í lokaðar sjókvíar og/eða færast upp á land. Umhverfisáhrif opins sjókvíaeldis, hvort sem horft er til staðbundinnar mengunar frá úrgangi, laxalúsar eða erfðablöndunar við villtan lax, eru að mínu mati of mikil.“
Þetta kemur fram í grein sem ráðherrann skrifar á Kjarnann og birtist í gær.
Guðmundur Ingi minnist á það að í lok maí 2022 skipaði matvælaráðherra fjóra starfshópa til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum, þar með talið fiskeldi, ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. „Úr þeirri vinnu erum við að stefna á að skapa nýjan ramma þegar kemur að því hvernig við umgöngumst og ávöxtum auðlindirnar okkar á sem bestan hátt.“
Ráðherrann segir að mikilvægi fiskeldis fari ört vaxandi, bæði á landsvísu og í byggðum þar sem hallað hefur undan fæti og því sé einmitt mikilvægt „að tekin verði stefnumótandi ákvörðun um hvernig við viljum sjá fiskeldi þróast á næstu árum og áratugum, í sátt við náttúruna. Ég vonast til að við fáum góðar tillögur úr starfshópum matvælaráðherra.“
Hvert stefna vinstri grænir?
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra er einnig varaformaður flokks Vinstri grænna, flokks forsætisráðherra og matvælaráðherra. Þarna lýsir varaformaðurinn nokkuð skýrt hvað hann vill að komi út úr endurskoðun á stefnu fyrir fiskeldið. Verði það opinber stefna að færa það upp á land þýðir það einfaldlega að að laxeldið leggst af á Vestfjörðum. Það eru ekki landkostir til staðar. Með slíkri stefnumörkun verða Vestfirðingar sviptir möguleikanum að nýta náttúrulega auðlind fjórðungsins, lífríkið í fjörðunum, til þess að skapa verðmæti upp á marga tugi milljarða króna á hverju ári. Hinn kosturinn sem varaformaður Vinstri grænna vill sjá eru lokaðar eldiskvíar í sjó. Þær eru ekki raunhæfur kostur í nálægri framtíð en verði það einhvern tíma mögulegt þá er spurningin hvort þær verði nokkuð á Vestfjörðum. Hafsvæði sem eru í dag lokuð fyrir sjókvíaeldi, sem reyndar er stærstur hluti strandlengju landsins, utan Vestfjarða og hluta Austfjarða, verða væntanlega opin fyrir lokaðar eldiskvíar. Með öðrum orðum , forskot Vestfjarða, myndi ekki vera lengur til staðar.
Varaformaður Vinstri grænna er þeirrar skoðunar að umhverfisáhrifin af sjókvíaeldi á Vestfjörðum séu of mikil og leggst gegn starfseminni. Það eldi, sem hann getur samþykkt, mun verða á sunnanverðu landinu þar sem land er nægilegt og nálægt útflutningshöfnum og flugvelli landsins. Hann væntir þess að endurskoðun stefnunnar undir forystu Matvælaráðherra, flokksbróður síns, skili góðum tillögum.
Grein ráðherrans nefnist: eftir ræðurnar göngum við í verkin.
Spurningin er hvort aðrir stjórnarflokkar láti teyma sig til þeirra óhæfuverka að koma laxeldi á Vestfjörðum fyrir kattarnef.