Markaðsstofur landshlutanna (MAS) eru sex talsins, á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi og á Suðurlandi.
Hlutverk þeirra er að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu, sjá um útgáfumál, móttöku blaðamanna ásamt beinni markaðssetningu og vinnu við vöruþróun í ferðaþjónustu.
Markaðsstofur landshlutanna halda árlega ferðakaupstefnu á höfuðborgarsvæðinu, þar sem landsbyggðarfyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.
Í ár verða 230 sýnendur á Mannamótum Markaðsstofa landshlutanna sem í ár verður í Kórnum í Kópavogi þann 19. janúar kl. 12-17.
Frá Vestfjörðum eru þessir þátttakendur í ár:
Reykhólar – Báta- og hlunnindasýningin
Sauðfjársetrið
Galdur Brugghús
Byggðasafn Vestfjarða
Melrakkasetur Íslands
Iceland Backcountry Travel
Gemlufall gisting og Café
Hnjótur – Minjasafn Egils Ólafssonar
Dokkan brugghús
Fantastic Fjords
Vesturbyggð
Sjóferðir
Gistihúsið við Höfnina /Harbour Inn
Ísafjörður Guide
Hótel Ísafjörður
Westfjords Adventures
Vesturferðir
Galdrasýning á Ströndum
Borea Adventures Vegamót Bíldudal