Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust tvær umsóknir um embætti skólameistara Menntaskólans á Ísafirði.
Umsækjendur um embættið eru:
- Anna Jóna Kristjánsdóttir, forstöðumaður
- Heiðrún Tryggvadóttir, settur skólameistari
Stefnt er að því að ráða í embættið sem fyrst og verður nýr skólameistari skipaður frá áramótum.