Þær gleðifregnir bárust frá Suðureyri um miðja síðustu viku að lekinn sem leitað hefur verið að á svæðinu sem afmarkast af Eyrargötu, Skólagötu, Stefnisgötu og Rómarstíg var fundinn.
Í ljós kom að lekinn var í lögn á gatnamótum Eyrargötu og Skólagötu og þurfti því að skipta lögninni út.
Verkið tafðist lítillega á meðan beðið var eftir varahlutum að sunnan og svo vegna veðurs en samkvæmt fregnum frá áhaldahúsi hefur allt vatn nú verið tengt aftur.
Vatnsmál á Suðureyri eiga því að vera komin í gott lag.