Evrópuleikarnir 2023 fara fram í Kraków í Póllandi dagana 21. júní til 2. júlí.
Þetta verður stærsti íþróttaviðburður í Evrópu á næsta ári með keppni í 26 íþróttagreinum.
Á heimasíðu leikanna er hægt að nálgast nánari upplýsingar um íþróttagreinar og fleira sem tengist Evrópuleikunum.
Nú er hafið umsóknarferlið fyrir þá sem vilja vera sjálfboðaliðar á Evrópuleikunum. Til þess að geta sótt um þarf viðkomandi að vera orðinn 16 ára (fyrir 1. júní 2023), kunna ensku og vera laus í a.m.k. átta daga á tímabilinu 21. júni – 2. júlí.
Það er verið að leita að allt að 8.000 sjálfboðaliðum í mjög fjölbreytt verkefni, allt frá því að taka á móti gestum á hótelum og flugvöllum í það að vinna á íþróttasvæðunum og aðstoða íþróttafólkið.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir íþróttaáhugafólk sem vill fá reynslu af því að taka þátt í undirbúningi og vinnu við stóran íþróttaviðburð um leið og það getur fylgst með fjölda íþróttagreina.
Áhugasamir geta lesið nánar um það hvað það felst í því að vera sjálfboðaliði á Evrópuleikunum sem og umsóknarferlið á heimasíðu leikanna.