Kvikmyndahátíðin The Pigeon International Film Festival (Piff) verður haldin í annað sinn, á Ísafirði 13. til 16. október. Búist er við enn meiri aðsókn í ár og sýndar myndir frá öllu heimshornum. „Hátíðin í fyrra var okkar frumraun og renndum við svolítið blint í sjóinn með þetta, og voru þátttakendur sammála um að hún hafi heppnast vel. Á hana mættu um 40 kvikmyndagerðarmenn, bæði íslenskir og erlendir, segir Fjölnir Baldursson, einn skipuleggjanda Piff-hátíðarinnar.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/09/Piff_sept22_a.jpg)
Sýndar verða myndir frá hátt í 30 löndum svo sem frá Póllandi, Íran, Bútan, Mexíkó og Austurríki. Um er að ræða 60 myndir. Sjö kvikmyndir, 25 stuttmyndir, fimm heimildarmyndir og svo einnig barna – og teiknimyndir. En alls bárust skipuleggjendum hátíðarinnar rúmlega 2.000 umsóknir frá vongóðum kvikmyndagerðarmönnum frá 64 löndum sem vildu sýna á hátíðinni. „Við búumst við betri aðsókn á hátíðina í ár. Bæði erlendis frá og einnig að fleiri heimamenn komi í bíó. Nú erum við búin að sanna að þetta sé hægt að vera með gæða kvikmyndahátíð á Ísafirði,“ segir Steingrímur Rúnar Guðmundsson, annar Piff-skipuleggjandi.
„Á síðasta ári þá gekk það vel að ná til bæjabúa í sambandi við mætingu á hátíðina, en margir gerðu sér ekki grein fyrir hve vegleg þessi hátíð var,“ bætir Fjölnir við. Hátíðin verður ókeypis fyrir gesti þar sem hún er dyggilega styrkt af fyrirtækjum.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/09/Piff_sept22_c-1024x754.jpg)
Flestar sýninganna fara fram í Ísafjarðarbíó en einnig verða frísýningar á fleiri stöðum á norðanverðum Vestfjörðum. Dagskráin verður kynnt betur síðar meir en opnun hátíðarinnar fer fram kl. 17 fimmtudaginn 13. október. Frekari upplýsingar er svo að finna á Facebook-síðu hátíðarinnar.
The Pigeon International Film Festival – PIFF | Facebook