Ísafjarðarbær býður til kynningarfundar fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila þar sem kynnt verður vinnslutillaga breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna fyrirhugaðrar landfyllingar norðan Skutulsfjarðareyrar.
Fundurinn verður haldinn á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði fimmtudaginn 15. september 2022 og hefst klukkan 20.
Á fundinum verða fulltrúar Verkís, kjörinna fulltrúa og bæjaryfirvalda.
Markmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að auka byggingarland fyrir íbúðir á Ísafirði. Landfyllingin verður norðan Skutulsfjarðareyrar, nánar tiltekið frá Norðurtanga að Eyrargötu 2-4.
Fyrirhugað er að nýta efni í landfyllinguna sem fellur til vegna dýpkunar við Sundabakka á Ísafirði.