Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður og rithöfundur er látinn, 52 ára að aldri. Hann fæddist þann 28. september árið 1969 í Bolungarvík sonur hjónanna Guðmundar Sigmundssonar kennara og Guðfinnu Benjamínsdóttur ljósmóður.
Eiríkur útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund árið 1988, lauk B.A. prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og M.A. í íslenskum bókmenntum frá HÍ árið 1995.
Árum saman starfaði hann sem dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og stýrði þar meðal annars menningarþáttunum Víðsjá og Lestinni.
Eiríkur skrifaði skáldsögurnar 39 þrep á leið til glötunar (2004), Undir himninum (2006), Sýrópsmáninn (2010), 1983 (2013), Ritgerð mín um sársaukann (2018), ljóðabókina Blindur hestur (2015) og ritstýrði heildarútgáfu á verkum Steinars Sigurjónssonar (2008).
Eiríkur lætur eftir sig einn son, Kolbein Orfeus og stjúpdóttur, Vöku Blöndal.