Í dag og næstu daga er haldin alþjóðleg píanóhátíð á Vestfjörðum sem býður upp á píanótónleika á heimsmælikvarða.
Áformað er að á hverju ári munu tónlistarmenn bjóða upp á spennandi dagskrá með einstaka listræna sýn og halda meistaranámskeið fyrir nemendur í samfélaginu sem lýkur með nemendatónleikum.
Gert er ráð fyrir að tónleikar verði á Patreksfirði, Tálknafirði og Ísafirði. Ferðinni lýkur með tónleikum í Hörpu í Reykjavík.
Tónleikarnir eru eftirfarandi:
17. ágúst kl. 20 – Tálknafjarðarkirkja
18. ágúst kl. 20 – Félagsheimili Patreksfjarðar
20. ágúst kl. 17 – Hamrar á Ísafirði
21. ágúst kl. 17 – Félagsheimili Patreksfjarðar
Stofnhátíðin í ár er styrkt að hluta af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og Ýlir – Tónlistarsjóði Hörpu.
Það er bandaríski píanóleikarinn Andrew J. Yang sem fluttist til Patreksfjarðar í miðjum heimsfaraldri sem er stofnandi Píanóhátíðar Vestfjarða, fyrstu tónlistarhátíðina á Vestfjörðum sem er tileinkuð slaghörpunni.