Listasafn Samúels stendur fyrir listahátíð í Selárdal 12. -13. ágúst. Meðal þeirra sem fram koma eru Skúli mennski og Between Mountains og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mun syngja við undirleik Francisco Javier Jauregui.
Í boði verður leiðsögn í gönguferð um nágrennið, flugdrekasmiðja fyrir fjölskylduna, Íslandsmót í listrænni flugdrekagerð og flugdrekaflugi og sýningar á steypverkum í Listasafni Samúels og á kvikmyndinni Steyptir draumar í kirkjunni. Matur verður í boði 27 Mathúss. Loks verður fjöruferð og brennusöngur með eðal Bílddælingum og DJ Mjalti bóndi mun koma fólki í góðan gír.
Hátíðarpassi kostar kr. 7000 frá föstudegi til laugardags, 12. -13. ágúst. Miðasala er á tix.is: https://tix.is/is/event/13736/listahati-samuels-2022/
Föstudagur 12. ágúst
20.00 „Steyptir draumar“ – heimildamynd um Samúel sýnd í kirkjunni.
21.00 DJ Mjalti bóndi í kirkjunni.
Laugardagur 13. ágúst
12.00 Hátíð sett. Kaffi og meðlæti.
Gönguferð í Verdali eða Vatnahvilft undir leiðsögn Sólveigar Ólafsdóttur.
Gerhard König segir frá uppbyggingu og viðgerðum og steypuverkum Samúels.
Smiðja í flugdrekagerð fyrir börn og fullorðna. Umsjón Fjóla Eðvarðsdóttir.
17.00 Íslandsmót í listrænni flugdrekagerð og flugdrekaflugi – Flugdrekakeppni.
18:30 Verðlaunaafhending í flugdrekakeppni.
19.00 Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jauregui – söngur og gítarleikur.
Kvöldmatur að hætti og í boði 27 Mathúss.
20.00 Between Mountains – tónleikar í kirkjunni.
21.00 Skúli mennski – tónleikar í kirkjunni.
21.30 Fjöruferð.
22.00 Brenna og brekkusöngur með eðal Bílddælingum.
DJ Mjalti bóndi sér um nóttina.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkti viðburðinn.