Fyrir 77 árum, 6. og 9. ágúst 1945, vörpuðu Bandaríkjamenn kjarnorkusprengjum á borgirnar Hírósíma og Nagasaki í Japan. Frá árinu 1985 hafa Íslendingar minnst fórnarlamba þessara skelfilegu árása með kertafleytingu og áréttað kröfuna um heim án kjarnorkuvopna.
Vestfirðir eru þar engin undantekning og verður fórnarlambanna minnst bæði á Ísafirði og á Patreksfirði 9. ágúst næstkomandi klukkan 22:30.
Komið verður saman á Ísafirði við Neðstakaupstað á Suðurtanga þar sem Nina Ivanova flytur ávarp og á Patreksfirði við franska minnisvarðann í Króknum mun María Ósk Óskarsdóttir flytja ávarp. Mun fólk sameinast í yfirlýsingunni Aldrei aftur Hirósíma og Nagasaki!
Vonast er til að sjá sem flesta.
Myndir: Bryndís Friðgeirsdóttir.