Fiskistofa hefur lokið útreikningi á hlutdeildum í sæbjúga í samræmi við lög frá 2022 um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja), sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní sl.
Þar er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum skipt niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021.
Í flipanum „Áætlaðar hlutdeildir skipa“ í meðfylgjandi excelskjali má sjá hlutdeildir skipa.
Í viðbótarflipum eru þær grunnupplýsingar sem Fiskistofa byggir á við áætlun hlutdeilda þ.e. þær landanir sem teljast til veiðireynslu ásamt flutningi veiðireynslu milli skipa í samræmi við lög um stjórn fiskveiða.
Fiskistofa beinir því til útgerðaraðila skipa sem eru með veiðireynslu í sæbjúgum á viðmiðunartímabilinu að fara yfir löndunartölur, veiðireynsluflutninga og hlutdeilda útreikningana og senda inn athugasemdir til Fiskistofu ef þurfa þykir.