Kostnaður ríkisins af vetrarþjónustu samkvæmt reglum um helmingamokstur vegna snjóa varð 3,1 m.kr. á síðasta ári. Á árinu 2020 varð kostnaðurinn hins vegar mun meiri eða 7,4 m.kr. Síðustu 5 ár hefur kostnaður ríkisins verið frá 1,1 m.kr. upp í 7,4 m.kr. Í helmingamokstri felst að Vegagerðin mokar viðkomandi veg gegn því að sveitarfélagið sem vegurinn er í greiði hinn helming kostnaðarins.
Þessar upplýsingar koma fram á Alþingi í svari innviðaráðherra við fyrirspurn frá Helga Héðinssyni um vetrarþjónustu samkvæmt reglu um helmingamokstur.
Nánari sundurliðun kostnaðar ríkisins á Vestfjörðum sundurliðuð eftir þjónustustöðvum er eftirfarandi:
Þjónustustöð | 2021 | 2020 | 2019 | 2018 | 2017 |
Patreksfjörður | 355.500 | 699.364 | 592.208 | 941.302 | 583.246 |
Hólmavík | 1.456.945 | 3.333.716 | 1.243.278 | 160.134 | 184.938 |
Ísafjörður | 1.272.089 | 3.335.132 | 539.209 | 1.705.575 | 376.508 |
samtals | 3.086.555 | 7.370.232 | 2.376.714 | 2.809.029 | 1.146.709 |
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hafa eftirtaldir vegir á Vestfjörðum heimild til helmingamoksturs:
Rauðasandsvegur Örlygshafnarvegur – vegamót Lambav./Melanes
Kollsvíkurvegur Hvammur-Hænuvíkurvegur
Ketildalavegur Bíldudalur – Feigsdalsvegur
Svalvogavegur Flugvöllur – Húsatúnsvegur
Ingjaldssandsvegur Núpur – Alviðra
Valþjófsdalsvegur Vestfjarðavegur-Hjarðardalsvegur Ytri
Önundafjarðarvegur Vestfjarðavegur -Vífilsmýrar
Seljalandsdalsvegur Seljalandsdalsvegur í Skutulsfirði
Syðradalsvegur Syðradalsvegur í Bolungavík
Laugardalsvegur Djúpvegur- Laugaból
Mjóafjarðarvegur Djúpvegur-Heydalsvegur (vestanverður)
Mjóafjarðarvegur Djúpvegur-Hörgshlíð (austanverður)Strandavegur
Strandavegur Bjarnafjörður-Gjögur
Snæfjallastrandarvegur Djúpvegur-Ármúli
Drangsnesvegur Kaldrananes-Háibakki