„Ég er ekki fylgjandi gjaldi af umferð um jarðgöng“ segir Eyjólfur Ármannsson, alþm. Flokks fólksins aðspurður um afstöðu hans til áforma um gjaldtöku af umferð í jarðgöngum á Íslandi, sem lýst er í samþykktri samgönguáætlun.
„Jarðgangaþörf er fyrst og fremst á landsbyggðinni og í hinum dreifðu byggðum, sérstaklega á Vestfjörðum og Austfjörðum. Mjög brýnt er að farið verði sem allra fyrst í Súðavíkurgöng, og gögnin um Mikladal og Hálfdán. Það er mikilvægt vegna öryggis vegfarenda og atvinnulífs. Þessi göng ætti ríkið að bjóða út í einu lagi og fá fram samlegðaráhrif við gangagerðina. Fráleitt væri að krefjast gjaldtöku af umferð um þessi jarðgöng af augljósum ástæðum.“
Skattur á landsbyggðina
„Gjaldtaka af umferð um slík jarðgöng væru ekkert annað en skattur á landsbyggðinni og þá umferð sem færi þar um. Gjald af umferð um jarðgöng kæmi einnig verst við fólk sem býr við sárafátækt. Jarðgöng á að fjármagna með skattpeningum. Bifreiðaskattar eru mjög háir í landinu og ber að nýta þá til jarðgangagerðar á landsbyggðinni.“
.