Úthlutanir úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina hafa nú verið tilkynntar og hljóta 21 verkefni styrk í ár. Verkefnin eru fjölbreytt og eru m.a. á sviði nýsköpunar í matvælavinnslu, uppbyggingu í vistkerfi nýsköpunar og STEAM greina og rannsókna á sviði sjávarfallavirkjana. Þá sýndu umsóknir um styrkina að um land allt er mikill áhugi hvað varðar nýtingu og sköpun verðmæta úr þörungum.
Alls bárust 100 umsóknir um styrki í ár og samtals var tæpum 100 m.kr. úthlutað til þeirra verkefna sem matshópur um veitingu Lóu nýsköpunarstyrkja taldi skara fram úr.
Hlutverk Lóu er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæða á landsbyggðinni. Styrkirnir veita aukinn slagkraft inn í nýsköpunarverkefni og stuðla að auknu samstarfi um land allt.
Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina fyrir árið 2022 voru auglýstir í vor og var umsóknarfrestur til 11. maí sl. Matshópur fór yfir allar umsóknir og gerði í kjölfarið tillögur til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um veitingu styrkja.
Þau verkefni em hljóta styrki á Vestfjörðum eru Sjótækni sem fær 12,5 milljónir til að rannsaka straumrastir og sjávarföll, Blámi sem fær 4,2 milljónir og Þörungamiðstöð Íslands á Reykhólum sem fær 8.1 milljón.